IF U CANT THINK , JUST PARTY!

MIXURNAR

18.01.2008 15:32:20 / mixies

Lötu Mixu druslur!

 

Ætlar enginn að blogga eða??? Jamms annars bara fréttir.. það er verið að plana annan Mixuhitting. Jebb, Siljan er að koma eina ferðina enn;)

Kem 6.feb og verð í 2 vikur. Ætlum að plata Hröbbu til að bjóða okkur í heimsókn. Hvað segiði um að við sleppum mat og höfum frekar kokteilkvöld.. HA? Bara með Mixara..ís...áfengi og góða skapið:)

Dagsetning nánar auglýst síðar:)

Endilega svo að tjá sig!!!!:)

Siljan..


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 23:04:35 / mixies

Silja..

Senn koma jólin..... senn koma jólin.... senn koma jólin..... ....og áramót og Silja:)

Er að koma 27.des-8.jan:)

Lov u..:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 10:27:38 / mixies

það er gaman að vera í skóla, sérstaklega milli nýárs og jóla

 

 

Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið og taka vel til í öllu herberginu. Hún sá að það var umslag á miðju rúminu og á því stóð: TIL MÖMMU. Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið og las skjálfhent bréfið sem í því var.

Elsku mamma.Það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman. Ég geri þetta svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér. Ég hef að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína. En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til hans því að ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé svo glaður með það. Hann er þegar búinn að kaupa hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur. Hann er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum og ég er svo innilega sammála honum með það. Ahmed hefur kennt mér það að marijuana gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því og kókaíni og E-töflum handa okkur báðum. En ég vona líka að vísindamenn finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið!! En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa. Þar að auki er Ahmed orðinn orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera. Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin þín.

Þín dóttir Guðrún.

PS: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt.
Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita
að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í efstu
skrifborðskúffunni. Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir
mig að koma heim.

hvenær er svo mæting á lördag?

kv Happy Happyson


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 21:50:47 / mixies

miss understood?

Sko... samkvæmt mínu dagatali er

20 nóvember þriðjudagur!

 

Átti hittingurinn ekki að vera á laugardegi?

(20.október var laugardagur)

 

Kv hrabba með dagatal 2007:) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 10:49:15 / mixies

Var einhver að tala um blogg?

jájájá ég lofaði að hamra einu mjöööög skemmtilegu bloggi hérna inná, og stend sko við það;)


Hér kemur stutt saga til að lífga upp á daginn:

ég var að keyra með kallinum og hann var að reykja (oj, skamm skamm). Allt í einu finn ég skrítna lykt og lít til hans og sé þá að það var kviknað í heimavinnunni minni!! Til að kveikja ekki í öllum bílnum henti hann verkefnablaðinu mínu út um gluggann. Ég öskraði alveg brjáluð ,,neiiiiiiii hvað varstu að gera? ég átti að skila þessu!!!!" Hann varð auðvitað alveg eins og kúkur og vissi ekkert hvernig hann átti að vera. En svo dó ég úr hlátri þegar ég hugsaði um setninguna ,,heyrðu það kviknaði í verkefninu mínu"

Haldiði að kennarinn eigi eftir að trúa þessu??

Það sem má læra af þessu er að reykingar geta eyðilagt mörg heimaverkefni...

 

Eeeeeen

 

  • Takk fyrir frábært kvöld í gær, þetta var rosa gaman, vonandi voru nágrannarnir ekkert pirraðir vegna þess að það hljómaði eins og fuglabjarg á tímabili hjá okkur!

  • Ég hlakka ógó mikið til 20. nóvember:D

En ég er farin að læra, víííí
Lifið heil Hrafnhildur

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 09:13:06 / mixies

Damm it girls this síða needs a fokking blogg men!!!

 TILEINKAÐ SIBBU (sem kan ekki að blogga)

Langt síðan hún Silja kom og  heimsótti okkur, núna er Sibba reyndar á landinu hefur einhver hitt hana, hún er reyndar bara í stutttu stoppi því hún er í prófum þetta greyi hún fer heim á sunnudaginn ef þið viljið reyna hitta hana eitthvað, veit hún verður í miðborginni á föstudaginn.

Sibba, Silja, Evarós og fíapía eru cool þær eiga allar myspace.com

 Ég er að fara til útlanda í sumar og fá bílpróf

Verðar með helgartilboð alltaf síðustu helgarnar í mánuði hér eftir tek 500kr fyrir að skutla fólki heim af djamminun, svo jæja fólk núna er bara taka upp síman og breyta Soffía Sætust í FíA TAXI

                                                     Kv. FíaPía

 

P.s Sibba sjáumst eftir 3 vikur

 

                        

og Siljan aftur

not so sexy  
    pixel


Falleg ung stelpa

» 10 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 11:53:28 / mixies

Siljan..

Við erum að koma til Íslands á fimmtudaginn!! Haldið ykkur fast og spennið sætisólarnar, Bínumæðgurnar eru á leiðinni!!!!!0

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 01:14:59 / mixies

ekkert skamm lengur

jæja snúllur og dúllur ég mundi loksins lykilorðið og ætla að skrifa e-ð hér í tilefni þess og vegna þess að ég vil ekki hafa Siljuna fjúkandi fjúríus8)

 

Ég veit samt ekkert hvað ég á að skrifa, en eitt veit ég og það er að ég er ekki búin að lifa skemmtilegasta lífi í heimi undanfarið, en það fer vonandi að skána! Ég er að fara að byrja í vettvangsnámi á mánudaginn, sem verður vonandi stuð....

Ég hef engan vegin verið að standa mig í drykkjunni en hef aðeins bætt úr því síðustu 2 helgar:D Á samt langt í land með að ná henni Loffu, hún er full all the way (eða svona næstum). Set kannski áramótaheit núna það er að bæta drykkjuna, hehe, ef það má ekki strengja áramótaheit svona sein þá kalla ég þetta páskaheit eða páskahret, það eru jú að koma páskar og páskaegg!

 

Á ég að segja e-ð meira? Hmmmm, ég er ekki búin að gera skattaframtalið mitt, bróðir minn er að fara að fermast oooog já það lítur út fyrir útlandalaust ár í ár. kannski voru 3 utanlandsferðir nóg í fyrra???? veit samt ekki alveg og maður á víst aldrei að segja aldrei...

 

Allavena búin að blogga og ekki hægt að skamma mig næstu 4 mánuðina:lol:

Ástar og banana kveðjur happyson

 

P.s ég er komin með ísátu á háu stigi:o

P.s.s það er gaman að setja svona kalla:):o:lol::|:S8):D:(;)8|:!::cry::evil::$:klikk::whut::haha::P:^):frown: 

P.s.s.s ég held að ég verði að fara að sofa er komin með kallasvefngalsa og það finnst örugglega engum þetta fyndið, ekki einu sinni mér sjálfri. 


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 23:13:00 / mixies

Hvernig væri að standa upp af rassgatinu..

 

.... setjast við tölvuna og BLOGGA eitthvað þið lötu hundahænur!!!

 Það að hafa ekki tíma er ENGIN afsökun, þetta tekur ekki mikinn tíma, og ef að þið eruð að væla um að það sé mikið að gera hjá ykkur þá vil ég bara minna ykkur á það að hér er ein íslensk að læra indversku á dönsku í háskóla í DK, vinnur með skóla OG heldur uppi SEX heimasíðum enda tekur það ekki mikinn tíma að drulla einni færslu upp.

 Getið skrifað eins og HVAÐ SÉ AÐ GERAST Í YKKAR LÍFI!!!!!!!!!

Get svarið það letilýs. Eyði þessari f***heimasíðu út ef að þið nennið ekki að blogga!!!

Silja!


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 18:19:25 / mixies

Fréttir frá Aarhus..

Jæja, það er nú ansi langt síðan ég skrifaði síðast einhverjar fréttir af okkur mæðgum svo að best er að bjarga því snöggvast:)

Um jólin kom ég heim eins og þið flest vitið. Við stoppuðum í þrjár vikur, ég fór að vinna á Kópasteini og Tara var mest hjá pabba sínum og mömmu minni. Það var ofsalega gaman. Ég náði að hitta næstum alla og gera flest það sem ég ætlaði að gera. Ég fór reyndar ekki í sund, og fékk mér ekki SS pylsu, en það verður bætt úr því næst:) Takk fyrir mig allir!

Núna í byrjun febrúar byrjaði skólinn minn. Ég fékk inn í Sydasianstudier sem er í Historie deildinni. Ég er aðallega að læra indversku en líka indverska sögu.
Indverskan gengur ágætlega. Eftir fyrsta skóladaginn var ég í hálfgerðu veruleikasjokki, fannst ég ekki meika þetta alveg enda skil ég ekki kennarann 100% þegar hún er að tala um ýmissa málfræðiflokka og reglur. Auðvitað svolítið strembið að vera Íslendingur að læra indversku á danskri kennslu, upp úr enskum bókum. Veit stundum ekki alveg á hvaða tungumáli ég eigi að glósa og eru glósurnar mínar frekar alþjóðlegar. En svo lagaðist þetta allt saman og er alls ekki eins erfitt og mér virtist. Farin að kunna næstum bara alla stafina.. ha ha þetta er eins og í 6 ára bekk. Vei ég kann að skrifa stafinn A!:)
Við erum 8 í bekk og er ég eini útlendingurinn. Þetta er langminnsti bekkurinn í þessum stóra skóla, og birtist grein í Avisen með mynd af okkur, um það. Svolítið kjánalegt:) En smæðin gerir það að verkum að við kynnumst vel og erum strax farin að þekkjast ágætlega, búin að mynda lesgrúppur o.þ.h. Þetta eru allt frábærir krakkar:)

Ég er samt ekki hætt í hreingerningunum, því að ég er enn að vinna þar með skólanum. Ég er svona "vikar", svona afleysingarmanneskja. Þá er hægt að hringja í mig ef að einhver er veikur, í fríi eða mikið er að gera. Það er fínt, er á tímakaupi og er komin með 12 tíma það sem af er þessum mánuði, og vonast eftir 12 tímum í viðbót. Þá er mín bara sett:)

Næstu helgi er Þorrablót Íslendingfélagsins hér í AArhus. Hljómsveitin Sixties spilar og er veislustjórinn enginn annar en Helga Braga. Við erum ansi mörg sem ætlum saman svo þetta verður örugglega alveg rosalega gaman:)

Töru gengur rosalega vel í leikskólanum. Hún er alltaf í reglulegri dönskukennslu þar og flýgur áfram í dönskunni. Þann 19. febrúar er Fastelavn (öskudagur) og mega þá allir krakkarnir koma í búning í leikskólann. Hérna ríkir þvílíkur spenningur yfir því hvaða búningur verður valinn he he. Ég er akkúrat í fríi í skólanum þennan dag svo ég ætla líka kíkja því foreldrar eru velkomnir. Ég ætla nú ekki í búning samt:) Besta vinkona Töru heitir Farnoosh og er hún frá Íran. Mamma hennar talar enga dönsku og mjög slæma ensku svo það er ansi erfitt að tala við hana en pabbi hennar er læknaprófesor við Háskólann og talar ágæta ensku. Heimilið þeirra er voðalega fyndið. Inn í stofu er ekkert nema lítill sófi út í horni og sjónvarp við einn vegginn. Svo er risastórt, útsaumað teppi yfir allt stofugólfið og þar virðist borðhaldið vera. Töru var boðið í heimsókn um daginn, og þegar ég kom að sækja hana bauð mamma hennar mér inn í kaffi. Þarna sátum við, allir á táslunum nema ég (ég var virkilega að pæla hvort að ég væri dóni að vera í sokkum), á teppinu og drukkum kaffi og borðuðum kex. Þau virðast borða sitjandi á teppinu, horfa á sjónvarpið á teppinu og tala saman á teppinu. Hrikalega framandi eitthvað ha ha. Pabbinn var ekki heima, svo að 10 ára bróðir Farnooshar þurfti að túlka á milli mín og mömmunnar. Það var ofsalega skemmtilegt að sjá aðra menningarheima bara með að sitja inn í stofu hjá þeim!

Tara fór í munnlegt próf í grunnskólanum sem hún byrjar í í haust. Þau vilja sjá hvort að hún hafi þörf á sérkennslu eða jafnvel hvort að hún þurfi að fara í grunnskóla fyrir erlend börn. Hún flaug alveg í gegnum þetta próf og er ég handviss um að hún þurfi ekki einu sinni að þiggja stuðning þegar hún byrjar. Ég þarf sko aldrei að hafa neinar áhyggjur af henni Töru minni:)

Garðar, Björg, Dagný, Sunna og Dóra eru öll að koma um páskana. Við ætlum að hitta þau í Köben í nokkra daga, leigja svo bílaleigubíl og keyra til Aarhus. Síðan ætlum við að vera dugleg að ferðast um Jótland. Við hlökkum ofsalega til að fá þau og erum farin að telja niður dagana núna. Síðan kemur mamma í maí líklegast. Það verður ofsalega gaman að sýna þeim öllum lífið okkar hér:)

Ef að þið vitið um einhvern sem vill fá reglulegar fréttir af okkur og vera settur á póstlistann minn þá bara senda mér línu:)

Munið að kíkja á heimasíðurnar okkar:
l('http://www.taratibra.barnaland.is');">www.taratibra.barnaland.is og
l('http://www.blog.central.is/siljunnar');">www.blog.central.is/siljunnar...

Venlig hilsen fra Aarhus, kys og kram.. Silja og Tara Tíbrá:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 15:05:04 / mixies

Vidjó...

Vidjó frá Djamminu á Íslandi um jólin..

http://video.google.com/videoplay?docid=1514657645960048300&hl=en


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 12:08:30 / mixies

Espana..

Á spáni er gott að djamma og djúsa diskótekunum á. Hei!


Raðhúsið sem við verðum í í sumar:) Þessi litli strákur fylgir með sem þræll..


Gengið út a svalirnar..


Stofan..

Raðhús á tveimur hæðum, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, borðstofa, stofa, riiiisastórar svalir, garður og sundlaug í götunni. Stutt í verslanir, bari, veitingastaði og á strönd. Ég hlakka svoooo til!


Torrevieja


Torrevieja..


Torrevieja


Torrevieja..


Torrevieja..


Þessi fylgir með mínu herbergi..


Þvottamaðurinn okkar..þvær ekki bara þvotta sko..


Slurp og slef, svo kemur mín aldrei til baka he he:)

Todos los hombres son muy guapos y Espana es país felicitad. Vamais con nosotros...


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 19:37:44 / mixies

Kyntáknið

Image and video hosting by TinyPic

jæja löngu kominn tíma á blogg fyrir þennan hóp, því jú litlu jólinn löööööngu búinn og þakka ég fyrir hönd hópsins henni Evu okkar fyrir það. En já komið nýtt ár og útlendingarnir okkar eru að fara og er það ekki gaman. Sibba og Silja góða ferð.

En já þá er bara að fara að fara huga að 2007 og vonandi verður það jafn gott ár og 2006 því að mínu mati er 2006 eitt það skemmtilegasta í mínu lífi og einsog þið stelpur vitið þá finnst mér bara gaman að skipulegja, plan og dreyma.

Vildi svo bara seigja hvað ég er glöð að hafa kynnst ykkur öllum þið eru allar hver ólíkur demanturinn enda er það góð ástæða fyrir því að við erum the MIXUR elska ykkur mest

                                    ykkar Fía Pía bullari

pixel


   

pixel



» 7 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 18:34:17 / mixies

Jólaglögg hikk hikk

Þið eruð nú alveg ömurlegir síðuhaldarar!! Ekki þú Soffía mín samt:)

Ennnnnnnn..........Jólaglöggið 29.des....

Hverjir koma? Skráning takk...

Hvað á að vera í matinn? Eða bara eitthvað snarl/snakk? Tillögur takk!!!
Allir að koma með eitthvað með sér...

Gjöf... Allir að koma með eina gjöf að verðmæti í kringum 1000 kallinn og höfum pakkarugl... með eða á móti???

Koma svo með fleiri uppástungur! Hvar eigum við að vera, við verðum að ákveða!!!

Eva, þetta er föstudagurinn EFTIR jól, verðuru nokkuð að vinna fram eftir? Getum við verið hjá þér?

Sheik sheik og bomm bomm..

ALLIR AÐ TJÁ SIG HVORT AÐ ÞEIR KOMIST EÐA EKKI. ENGAR AFSAKANIR TEKNAR MEÐ enda eru afsakanir bara fyrir aumingja og Bill Clinton (því hann er ekki aumingi).

Hlakka til að sjá smettin á ykkur:)

Siljan


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 20:03:30 / mixies

Litlu Jól...

Hvað segiði um að halda Litlu jól 29. desember (föstud. milli jóla og nýárs)? Dinner, vín, glaumur og gleði. Hugmynd að allar koma með einn pakka (1000 kr) og hafa pakkarugl? Hvað segiði girlur????

Silly billie:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3